Um er að ræða endaraðhús með gistirými fyrir 6-8 manns , allt innbú er afar vandað í húsinu. Húsnæðið er 118 fermetrar á þremur hæðum á 1. hæð er herbergi með hjónarúmi , sameiginleg stofa , eldhús og wc. Á 2.hæð eru tvö herbergi annað með hjónarúmi og hitt með 2. rúmum sem hægt er að færa saman, wc/baðherbergi og lítið hol , á þriðju hæð er svo herbergi með hjónarúmi og baðherbergi, útgengt er á sólarsvalir með góðu útsýni yfir svæðið, sést yfir á La Manga skagann. Innbyggð loftkæling og kynding er í húsinu með auðveldu stýrikerfi og er það nánast hljóðlaust. Í stofu er sjónvarp með fjölda sjónvarpsrása. Einnig er heimabíókerfi með DVD spilara. Stækkanlegt borðstofuborð með 6 stólum er í borðstofu. Í eldhúsi er ísskápur , uppþvottavél, þvottavél, kaffivél, brauðrist, safapressa, blandari, pottar , pönnur og öll helstu áhöld til matargerðar, allur borðbúnaður er fyrir 12 manns. Svefnherbergin eru með góðum rúmum, barnaferðarúm og barnastóll er til staðar. Stórir skápar eru í herbergjum á annari hæð. Baðherbergin eru þrjú, á fyrstu hæðinni er klósett, vaskur og góðir skápar en á annarri hæðinni er sturta, klósett, vaskur og góðir skápar, á þriðju hæðinni er sturta vaskur og skápur. Öll rúmföt og handklæði eru til staðar, ásamt strandhandklæðum. Lóð húsins er afgirt og hægt er ganga með húsinu í bakgarð ,einnig er útgangur úr eldhúsi í bakgarðinn. Sólbaðsaðstaða og gott rými er til að borða úti bæði á verönd og í bakgarði. Sundlaugargarðurinn er í lokuðum kjarna á milli húsanna og er garðurinn læstur fyrir almenningi , einungis ætlaður þeim sem gista húsin og gesti þeirra. Húsið er vel staðsett, þú horfir út til sundlaugarinnar frá verönd og sérð til beggja innganga inn í garðinn. Húsinu fylgir stórt útigrill, útihúsgögn fyrir 8 til 12 manns og sólbekkir fyrir 6.
Dýrahald er ekki leyft í húsinu og reykingar aðeins leyfðar utandyra.